Um þennan viðburð

Tími
18:00 - 19:30
Verð
Frítt
Staður
Veröld - Hús Vigdísar
Brynjólfsgata 1
107 Reykjavík
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir

FRESTAÐ Café Lingua | Stefnumót tungumála

Fimmtudagur 19. mars 2020

Vinsamlegast athugið að þessum viðburði hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Viltu kynnast einhverjum sem talar reiprennandi tungumálið sem þú ert að læra? Viltu deila þínu eigin tungumáli með einhverjum sem er að reyna að ná tökum á því? Einstakt tækifæri til að kynnast nýjum menningarheimum og heimsborgurum í Reykjavík í notalegu umhverfi og æfa sig í tungumálum í leiðinni.

Café Lingua – lifandi tungumál er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Vigdísarstofnunar, alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar. Eitt af markmiðunum er að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands með fólki hvaðanæva að og auðgað mannlíf og menningu ásamt því að vekja forvitni borgarbúa á heiminum í kringum okkur. Café Lingua er gátt inn í mismunandi tungumála - og menningarheima og tilvalinn vettvangur fyrir þá sem vilja efla tungumálakunnáttu sína og hafa áhuga á að spreyta sig á hinum ýmsu tungumálum. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Aðrir samstarfsaðilar: Mála- og menningardeild, námsleiðin Íslenska sem annað mál, félögin „Huldumál“ og „Linguae" við Háskóla Íslands og Íslenskuþorpið.

Starfið er hluti af innleiðingu stefnu menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar um fjölbreytta menningu í borginni 2017-2020 „Rætur og vængir”.

Sjá nánar um verkefnið hér á heimasíðunni eða í Facebook-hópnum Café Lingua - lifandi tungumál.

Viðburðurinn á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir:

Dögg Sigmarsdóttir, Verkefnastjóri – Fjölmenningarmál
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6122