
Um þennan viðburð
FRESTAÐ Borðspilakvöld | Flóttaherbergi-Unlock
Vinsamlegast athugið að viðburðinum hefur verið frestað til 13. apríl n.k.
Langar þig að prófa að spila flóttaleik? Unlock er samvinnuspil í anda flóttaherbergja og ratleikjanna á sýningunni Þín eigin bókasafnsráðgáta. Leikmenn hafa klukkutíma til að leysa gátuna, en til þess þarf að vinna vel saman, taka vel eftir smáatriðum og tengja hluti saman. Við verðum með mikið af mismunandi „Unlock“ spilum sem hægt verður að velja úr. Spilið virkar fyrir fyrir 1 – 6 manns
Umsjón með smiðjunni hefur Embla Vigfúsdóttir borðspilahönnuður. Embla hefur komið að gerð margra borðspila og leikja og hannaði meðal annars leikina í sýningunni Þín eigin bókasafnsráðgáta. Embla starfar sem hönnuður og teiknari.
Við mælum með að mæta snemma og leysa eina af ráðgátunum í bókasafnsráðgátunni áður en borðspilakvöldið hefst. Hver gáta tekur um klukkustund að leysa.
Skráning á vef.
Frekari upplýsingar um viðburðinn:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, deildarbókavörður
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is