Liðnir viðburðir
Foreldramorgnar | Krílastund
Fimmtudagur 18. nóvember 2021
Krílastund í Grófinni
Við tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við bjóðum upp á foreldramorgna þar sem við leggjum áherslu á notalega samveru, spjall, leik og söng. Í krílahorninu okkar er gott úrval af harðspjaldabókum fyrir yngstu börnin. Klukkan 11 býður starfsmaður safnsins upp á söngstund. Í bókasafninu er mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að grípa með sér í leiðinni. Og ekki má gleyma öllum barnabókunum sem við eigum við hæfi barna frá 0 - 99 ára:)
Staðsetning: Barnadeild á 2. hæð
Kynnið ykkur barnadeildir safnanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6100