Fjölskyldumorgnar | Krílahornið
Krúttleg stund í Krílahorninu.
Hittumst í Krílahorninu! Á Fjölskyldumorgnum myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og tökum við gjarnan við ferskum hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.
Hægt er að hita pela við hliðina á Krílahorninu og góð skiptiaðstaða er á salerni hússins. Ekki spillir fyrir að fullorðna fólkið getur gripið sér rjúkandi kaffidrykk í söluvagni Kaffitárs í anddyrinu.
Fjölskyldumorgnarnir eru óformlegar samverustundir, alla þriðjudagsmorgna.
Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að grípa með sér í leiðinni. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Frekari upplýsingar veitir:
Vala Björg Valsdóttir
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is