Liðnir viðburðir
Fjölbreytileiki og menningarnæmi | Torgið
Fimmtudagur 9. september 2021
Hvar verðum við vitni að fjölbreytingaleika í menningu og hvað felur menningarnæmi í sér? Erum við læs eða næm á ólík menningaráhrif?
Ætti bókasafnið að merkja sum verkefni sem „fjölmenningarverkefni“ eða er allt sem við gerum með einum eða öðrum hætti fjölmenningarlegt?
Við hittumst á bókasafninu til að ræða þessar spurningar. Samtalið er opið öllum, til að hlusta og taka þátt.
Kíktu endilega við, þú gæti jafnvel uppgötvað eitthvað nýtt.
Viðburðurinn á Facebook.
Öll velkomin, þátttaka ókeypis.
Ert þú með málefni sem þig langar að ræða á bókasafninu? Bókasafnið er alltaf opið fyrir nýjum hugmyndum og tillögum að samstarfi.
Frekari upplýsingar veitir
Dögg Sigmarsdóttir | Verkefnastjóri borgaraleg þátttaka