
Um þennan viðburð
Fiktvarpið | Prjónum fallegt hálstau
Hentar börnum sem og fullorðnum.
Við mælum með því að allir finni sér eitthvað róandi og skjálaust til dundurs þessi misserin. Prjónastjarnan Pétur Heimisson mætir í Fiktvarpið og kennir okkur að prjóna í beinni! Fyrsta verkefnið verður að prjóna laglega slaufu fyrir bangsa, gæludýr eða mannfólk — létt og skemmtilegt verkefni sem hentar byrjendum vel.
Þátttakendur þurfa:
- léttlopa
- prjón, helst 3,5mm
- (valkvætt) öryggisnælu til að festa á bangsa (en alls ekki á hundinn) eða teygju
Linkur á streymið birtist á Facebook síðu Borgarbókasafnsins og í viðburði, rétt fyrir útsendingu.
Fiktvarpið er nýr vettvangur fyrir áhugasama tilraunakrakka og forvitið fullorðið fólk til að læra allskyns nýja og skapandi tækni á netinu. Þátttakendur Fiktvarpsins geta fiktað saman, spurt spurninga og fylgst með á eigin hraða.
Tilraunaverkstæði Borgarbókasafnsins býður upp á Fiktvarpið og eru allir velkomnir!
Í Fiktvarpinu mega þátttakendur:
• Vera með læti
• Koma með nesti
• Taka þátt, spyrja spurninga og fikta!
• Ýta á pásu, horfa á seinna
• Eða bara fylgjast með
Nánari upplýsingar:
Karl James Pestka
karl.james.pestka@reykjavik.is