Fiktdagar | Viltu fikta í frábærum forritum?
Hefur þú áhuga á tónlist eða myndvinnslu? Þá er þetta tækifærið til að rækta kunnáttuna með fikti og félagsskap. Prófaðu þig í eitthvað nýtt eða komdu með verkefni. Starfsfólkið okkar er til staðar til að veita aðstoð um það hvernig best er að bera sig að við að taka fyrstu skrefin. Á Verkstæðinu lærum við af mistökum og hjálpum hvert öðru – þess vegna eru byrjendur jafnt sem lengra komnir jafn mikilvægir á Verkstæðinu.
Komdu á Verkstæðið í Grófinni og fiktaðu í frábærum forritum!
Í boði eru til dæmis:
- Tónlistarforrit: Logic Pro, Ableton Live, Reaper og Garageband
- Myndvinnsluforrit: Final Cut Pro, Adobe (Photoshop, InDesign, Illustrator, Premiere Pro, o.s.fr.) og iMovie
- Svo erum við líka með grænskjá (green sceen)!
Allir eru velkomnir algjörlega óháð kunnáttu, ungir sem aldnir - en yngri en 13 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Þátttakendur mega gjarnan mæta með eigin fartölvu og verkefni, en á staðnum eru fjórar veglegar iMac tölvur. Komdu snemma til að tryggja þér tölvu eða bókaðu sæti hér fyrir neðan.
Meira um Fiktdaga, opna aðstoðartíma á Verkstæðinu í Grófinni.
Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka, verkefnastjóri
karl.james.pestka@reykjavik.is | 665 0898