Eilífs saga: Heitt hjarta og illt
Gestum og gangandi er boðið að fagna útgáfu bókarinnar Eilífs saga - Heitt hjarta og illt.
Þetta mun vera önnur skáldsaga höfundarins Eiríks P. Jörundssonar. Þó af allt öðrum meiði en sú fyrri þótt í sögunni bregði fyrir meintum glæpafólum og refsingum.
Eiríkur er sagnfræðingur að mennt. Árið 2016 lauk hann við söguritið Þar sem land og haf haldast í hendur - Súðavíkurhreppur að fornu og nýju. Þremur árum síðar hlaut Eiríkur glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina Hefndarenglar. Og enn þremur árum síðar lítur dagsins ljós nýja bókin, Heitt hjarta og illt, nýstárlegur bræðingur sögulegu skáldsögunnar og fantasíunnar, þar sem sögulegir atburðir og einstaklingar fléttast saman við heillandi skáldaðar persónur, þjóðsögur og yfirskilvitlega hluti.
Í hófinu mun Eiríkur kynna efni bókarinnar og lesa upp valda kafla. Einnig mun dóttir hans, leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir, lesa upp úr bókinni.
Á svæðinu verður létt skap og léttar veitingar í góðum hópi gesta. Bókin á tilboðsverði og höfundur áritar fyrir þá sem þess óska.
Öll velkomin!
Umsjón: Eiríkur P. Jörundsson,
eirikurpj@gmail.com
Frekari upplýsingar um Rými fyrir höfunda - Borgarbókasafninu Grófinni.