Liðnir viðburðir
Ef ég væri tígrisdýr | Barnaleikrit
Laugardagur 19. nóvember 2022
“Ef ég væri tígrisdýr” er fræðandi og fyndin barnasýning sem hentar allri fjölskyldunni. Sviðslistahópurinn Flækja kíkir í heimsókn á safnið og býður í spennandi ferðalag með hinni 8 ára Láru sem flýgur á vængjum ímynduaraflsins.
Sviðslistarhópurinn Flækja var stofnaður árið 2019 af þeim Sigríði Ástu og Júlíönu. Hópurinn hefur skapað leiksýningar fyrir bæði börn og fullorðna, ferðast um landið og sýnt á hinum ýmsu leiklistarhátíðum. Markmið hópsins er að skapa þýðingarmikið leikhús þar sem málefni líðandi stundar eru tækluð af virðingu, með fagurfræði að leiðarljósi.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Herdís Anna Friðfinnsdóttir, herdis.anna.fridfinnsdottir@reykjavik.is
Justyna Irena Wilczyńska, justyna.irena.wilczynska@reykjavik.is