Liðnir viðburðir
Bros - BINGO
Fimmtudagur 24. nóvember 2022
Spilum saman BROS-bingó og lærum í leiðinni alls konar ný orð á íslensku. Hægt er spila bingóið á venjulegum spjöldum og þau sem treysta sér til geta spilað í tölvu eða síma.
Öll geta tekið þátt, óháð aldri og tungumálakunnáttu. Skemmtilegir vinningar fyrir þau heppnu!
Bingóstjóri verður Daði Guðjónsson en hann hefur kennt íslensku sem annað mál í mörg ár og þróað BROS-bingóið til að kenna fólki íslensku á auðveldan og skemmtilegan hátt.
Samverustundin fer fram á Torginu, 1. hæð bókasafnsins í Grófinni.
Viðburðurinn er styrktur af Velferðarsjóði barna og Origo.
Nánari upplýsingar:
Daði Guðjónsson
Dadi.Gudjonsson@rvkskolar.is
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is