Borg fyrir börn | Við prentarann
Viltu kynnast verkefninu Borg fyrir börn við prentarann á bókasafninu í Gerðubergi?
Markmið verkefnisins Betri borg fyrir börn er að bæta þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Þá er lögð áhersla á að þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Færa á þjónustuna í auknum mæli í skólaumhverfi barna og ungmenna með aðferðum snemmtækrar íhlutunar og nálgunar. Styðja á betur við starfsfólk í skóla- og frístundastarfi og færa stjórnun stofnana skóla- og frístundasviðs nær vettvangi og ná samlegðaráhrifum meðal annars á sviði fjármála, mannvirkja og mannauðs.
Óskar Dýrmundur Ólafsson starfar sem framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Breiðholts og hefur jafnframt leitt margvísleg nærþjónustu verkefni sem hverfisstjóri. Hann hefur starfað í rúma tvo áratugi sem leiðtogi við þróun á margvíslegum verkefnum sem miða að því að bæta og þróa þjónustu við borgarbúa.
Öll velkomin, heitt á könnunni og frítt að prenta.
Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is