Um þennan viðburð
Borðspilakvöld | Flóttaleikur - Unlock
Langar þig að prófa að spila flóttaleik?
Á borðspilakvöldinu ætlum við ætlum að spreyta okkur á samvinnuspilinu Unlock, sem er í anda flóttaleikja eins og Þín eigin bókasafnsráðgáta, sem tengist sýningunni sem nú stendur yfir í Gerðubergi.
Við verðum með mismunandi Unlock spil til að velja úr, með mörgum ólíkum þemum, allt frá forn-Grikkjum til risaeðla. Allt að 6 manns geta spilað saman í hóp, en 2 duga alveg, svo gríptu með þér einhverja ráðagóða félaga. Markmiðið með leiknum er að ná að leysa gátuna og „sleppa út“ á klukkutíma, en til þess þarf að vinna saman, tengja saman hluti, gera fullt af mistökum, snúa höfðinu á hvolf og taka vel eftir smáatriðum.
Embla Vigfúsdóttir borðspilaunnandi, hönnuður og teiknari verður ykkur innan handar. Embla hefur komið að gerð margra borðspila og leikja og gerði meðal annars ratleikina í sýningunni Þín eigin bókasafnsráðgáta.
Ef þú vilt koma þér í gírinn mælum við með að mæta snemma og leysa eina af ráðgátunum í Þín eigin bókasafnsráðgáta áður en borðspilakvöldið hefst.
Sjá skráningarform fyrir borðspilakvöldið hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, deildarbókavörður
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is