Liðnir viðburðir
Bolla! Bolla! Bolla!
Sunnudagur 20. febrúar 2022
Það er skemmtileg hefð að föndra litríka vendi fyrir bolludaginn.
Við verðum á umhverfisvænum nótum og notum trjágreinar, dagblöð, tímarit, bæklinga og alls kyns afgangspappír í bolluvendina. Allir geta búið til vönd, en yngsta fólkið þarf kannski dálitla aðstoð frá fullorðnum.
Eigum saman góða fjölskyldustund og höldum í skemmtilega hefð.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, deildarbókavörður
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6255