
Um þennan viðburð
Bókakaffi | Sannleikur sögunnar, frelsi skáldsögunnar!
Grafarvogsbúinn, bókasafnsnotandinn, rithöfundurinn og skáldið Einar Már Guðmundsson les upp úr nýútkominni bók sinni, Skáldleg afbrotafræði, á bókasafninu í Spönginni.
Bókin er makalaus aldarfarssaga sem bregður upp litríkri mynd af samfélagi og tíðaranda í byrjun 19. aldar. Sögusvið hennar eru þorpin við suðurströndina, en jafnvel á hjara veraldar berast hugmyndir utan úr Evrópu um breytta samfélagsskipan. Prestar og hreppstjórar ráða enn örlögum smælingja en alþýðan er farin að átta sig á óréttlætinu og það styttist í að hún láti verkin tala. Einar Már hefur leitað fanga í samtímaheimildir við ritun bókarinnar, aldarfarslýsingar og réttarskjöl, þekktir karakterar koma við sögu en fá meira rými en í formlegum skjölum. Í bókinni eru ótal þræðir á lofti, gleði og sorg, kúgun og frelsi, sögulegur fróðleikur í bland við yfirskilvitleg fyrirbæri - og svona mætti lengi telja!
Einar Már Guðmundsson hefur sent frá sér tugi skáldverka og hlotið fyrir þau ýmis verðlaun, svo sem Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Verið öll velkomin!
Frekari upplýsingar:
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is