Be Part! Langborðsumræður
Be Part (Be people of art) stendur fyrir alþjóðlegu samstarfsverkefni á Íslandi þann 30. janúar til 12. febrúar 2023. Langborðsumræður er opnunarviðburður samstarfsins. Verið velkomin að taka þátt í opnu samtali og deila hugmyndum og reynslu af góðu samstarfi og verkefnum á þessum alþjóðlega fundi þar sem jafningjafræðsla er höfð að leiðarljósi.
Komdu og segðu okkur frá verkefnum þar sem listrænt og skapandi samstarf hefur heppnast vel svo tengsl hafa myndast og upplifun að því sem sameinar okkur sem jafningja á ólíkum stöðum samfélagsins.
Að verkefninu koma innflytjendur og hælisleitendur ásamt íslenskum borgurum og munu sameinast í sköpun á dansleikhúsi í samstarfi við 17 alþjóðlega sviðslistamenn. Afrakstur vinnunnar verður að dansleiksýningu sem verður sýnd þann 11. febrúar.
Samstarfsaðilar: Dansverkstæðið, Rauði Kross Íslands, Listasafn Kópavogs, Borgarbókasafnið, Reykjanesbær, Iðnó, Hamarinn – ungmennahús Hafnarfjarðar, Samfélagshúsið Vitatorgi, Árskógar félagsstarf. Verkefnið var styrkt af EEA og Norway Grants.
Nánari upplýsingar veita:
Martyna Karolina Daniel, intercultural specialist
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is