Barnamenningarhátíð | Vogurinn okkar og nærliggjandi náttúra
Á sýningunni, sem er liður í Barnamenningarhátíð, má skoða verk nemenda í Húsaskóla og Víkurskóla í Grafarvogi.
Nemendur í 9. bekk Víkurskóla rannsökuðu umhverfið sitt í Grafarvogi: náttúruna, dægurmenningu, hljóð og umhverfisáreiti. Afraksturinn er hljóðverk og nálaþæfður sófi. Verkin unnu nemendur með Ásrúnu Ágústsdóttur textílhönnuði og Kötju raflistamanni.
Nemendur 3. bekkjar Húsaskóla unnu rannsóknir á lífríki sjávar með áherslu á spendýr hafsins. Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarmaður kom svo og vann með nemendum myndverk sem byggja á rannsóknum þeirra. Verkin á sýningunni vekja gesti til umhugsunar um áhrif einstaklingsins á sitt nánasta umhverfi og náttúruna, í dag og í framtíðinni.
Sýningin Vogurinn okkar og nærliggjandi náttúra er á vegum þróunarverkefnisins LÁN (Listrænt ákall til náttúrunnar), sem er liður í menntastefnu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.
Sjá dagskrá Barnamenningarhátíðar hér
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is