
Um þennan viðburð
Barnamenningarhátíð | #leggjumviðhlustir
Nemendur í 7. bekk Borgaskóla bjóða á tónleika sem veita innsýn í námskeiðið #leggjumviðhlustir sem tónskáldið Halla Steinunn Stefánsdóttir vann í samstarfi við nemendur.
#leggjumviðhlustir var unnið í skólabyggingunni og nærumhverfi hennar þar sem unnið var út frá spurningum um hvernig við hlustum og á hvað. Nemendur lærðu að nota upptökutæki og héldu í umhverfisupptökur.
Verkið verður sett upp sem fjögurra hátalara hljóðinnsetning. Nemendur Borgaskóla munu stíga inn í verkið, ásamt kammerhópnum Nordic Affect og kallast á við hljóðupptökurnar og vinnslu þeirra. Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg, Barnamenningarhátíð og Tónlistarsjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Jafnframt var ljóðskáldið Angela Rawlings ráðgjafi í verkefninu.
Verkið verður flutt tvisvar sinnum, kl. 16:15 og kl. 17.
Sjá dagskrá Barnamenningarhátíðar hér
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is