AFLÝST Vetrarfrí |Tónlistarsmiðja fyrir 13 ára og eldri
Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Sjá nánar hér.
Hefur þú brennandi áhuga á tónlist? Þriggja daga tónlistarsmiðja 22, 23 og 26. október klukkan 13.00-15.00 fyrir byrjendur sem og lengra komna. Ef þú hefur áhuga á textagerð, söng, rappi, hljóðfæraleik eða pródúseringu er þetta smiðja fyrir þig.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að semja tónlist. Ekki er nauðsynlegt að kunna á hljóðfæri og allir á aldrinum 9-16 ára eru velkomnir. Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig hér fyrir neðan.
Athugið skráning nauðsynleg!
Meðal annars verður farið yfir:
Textaskrif og innblástur
Hljómaganga
Hvað gerir lög catchy?
Form og uppbyggingu
Pródúseringu
Þátttakendur fá svo að spreyta sig á ýmsum æfingum
Umsjón með smiðjunni hefur Jóhannes Ágúst en hann er nýlega útskrifaður úr B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.
Fyrir nánari upplýsingar:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is
s. 411 6100