Að glíma við fátækt í okkar samfélagi | Opið samtal
Hvar finnum við stuðning þegar við getum ekki borgað reikningana? Hvert leitum við þegar það er ekki eftir króna í veskinu? Hvernig höldum við í virðinguna þegar við þurfum á aðstoð að halda?
Við bjóðum í opið samtal um fátækt í okkar samfélagi. Einstaklingum og félagasamtökum er boðið að deila sinni þekkingu á málefninu og kanna hvort vettvangur eins og bókasafnið gæti styrkt styðjandi tengslanet þeirra sem búa við fátækt í okkar samfélagi.
Opið samtal er vettvangur fyrir heiðarleg og opin samskipti. Hér könnum við ólík samræðuform og í sameiningu lærum við nýjar leiðir til að ræða málefni sem standa okkur nærri.
Öll velkomin
Þátttaka ókeypis
Ertu í vafa hvort þetta sé samtal fyrir þig? Sendu mér skilaboð og ég segi þér meira frá vettvangnum
Opið samtal
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is