Valgeir Gestsson
Valgeir Gestsson

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Kaffistundir
Spjall og umræður
Tónlist

Vínylkaffi með Valla

Miðvikudagur 29. mars 2023

Það er hægt að tala endalaust um tónlist og það er einmitt það sem við gerum á Vínylkaffinu. Þar eru öll þau sem hafa áhuga og unun af tónlist velkomin til að ræða og fræðast, hlusta og njóta.

Að sjálfsögðu er heitt á könnunni og kex í boði.

Þetta er í rauninni eins og bókaklúbbur, nema að þú þarft ekki að vera búinn að lesa einhverja bók, þú þarft bara að mæta. Hvað er betra en að sitja og spjalla með hóp af fólki sem hefur sama áhugamál? Og þar að auki með gæðatónlist undir nálinni!

Það jafnast ekkert á við vínylplötur í hljómgæðum og upplifun. Enda hafa þær hægt og rólega átt undraverða endurkomu á þessari öld. Á nýliðnu ári náðu þær loksins aftur að taka fram úr geisladisknum í sölu. Borgarbókasafnið á glæsilegt safn af tónlist á vínyl og Vínylkaffið hefur átt vaxandi vinsældum að fagna.

Frábær skemmtun jafnt fyrir leikmenn sem lengra komna!

Næsta Vínilkaffi verður haldið 10. maí n.k.

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild
valgeir.gestsson@reykjavik.is |  411 6100