Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Kaffistundir

FRESTAÐ Handverkskaffi | Salka Sól

Miðvikudagur 3. mars 2021

Athugið viðburðinum hefur verið frestað til 5.maí n.k.

Salka Sól sló í gegn um jólin með sinni fyrstu prjónabók sem hún gaf út ásamt Sjöfn Kristjánsdóttur, prjónahönnuði, í samstarfi með Stroff.is

Salka Sól er gestur okkar í kvöld á handverksskaffi í Gerðubergi og ætlar að deila með okkur sinni prjónasögu, sýna okkur verkefnin á prjónunum, segja frá bókinni og ýmsu fleira. 

Takið verkefnin ykkar endilega með og fyllist innblæstri af ævintýrum Sölku Sólar. 

Skráning á viðburðinn er hér fyrir neðan.

Viðburðurinn á Facebook. 

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

Um kaffistundirnar:
Á kaffistundunum okkar er komið víða við, hvort sem þú hefur áhuga á handverki, bókmenntum, heimspeki eða þjóðlegum fróðleik svo fátt eitt sé nefnt. Við fáum til okkar góða gesti sem kynna hugðarefni sín í máli og myndum auk þess sem áheyrendur taka virkan þátt í umræðunum.

Nánari upplýsingar um viðburðinn veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is 
s. 6980298 

Bækur og annað efni