Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir

Fræðakaffi | „Svínslegar krossgátur“

Mánudagur 30. október 2023

Ævar Örn Jósepsson fréttamaður og rithöfundur er þekktur fyrir vísbendingakrossgátur sínar, sem fyrir mörgum setja punktinn yfir i-ið á sunnudagsmorgunkaffinu. Krossgátur hans birtust lengi vel vikulega í fjölmiðli sem ekki lengur kemur út, en nú er hægt að nálgast þær HÉR. Gáturnar eru vinsælar og dæmi eru um starfandi krossgátuklúbba, þar sem fólk leysir gáturnar í sameiningu.

Sjálfur lýsir hann gátum sínum sem „svínslega erfiðum“, hann gefur oft afar langsóttar og snúnar vísbendingar og stundum er lausnin falin í gátunni sjálfri. Hvernig er þetta hægt, spyrja margir sig, svo eru aðrir sem hafa lært að fylgja þankagangi Ævars og þekkja hvernig hann leikur sér með orð og slítur þau í sundur á óvenjulegum stöðum. 

Dæmi um vísbendingar Ævars:  „Úr ati og fjöri verður ólifnaður“, „Blæblíð og farðafríð“, „Rek gamlan rokkara í gegn“.

Ævar Örn spjallar um krossgátugerð sína og reynir að útskýra hvernig hann hugsar þegar hann sest við smíðarnar.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230