Hafsteinn Einarsson fjallar um heilbrigði og heilsu í heimi gervigreindar
Hafsteinn Einarsson fjallar um heilbrigði og heilsu í heimi gervigreindar

Um þennan viðburð

Tími
17:15 - 18:00
Verð
Frítt
Fræðsla
Kaffistundir

Vísindakaffi | Heilsa, heilbrigði og gervigreind

Fimmtudagur 14. október 2021

Á þessu Vísindakaffi verður rætt um aðkomu gervigreindar að heilbrigðiskerfinu og þá möguleika og takmarkanir sem í þeirri samþættingu gætu leynst.

Gæti gervigreind greint sjúkdóma betur og hraðar en mannlegt auga? Hvað þyrfti til? Hvers konar tilraunir hafa verið gerðar á þessu sviði? Og hvað með persónuvernd í gagnasöfnun?

Hafsteinn Einarsson er lektor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi frá ETH Zurich í Sviss árið 2017 og hafa rannsóknir hans m.a. verið með fókus á taugavísindi, vélnám og máltækni. Hafsteinn er einnig einn af stofnendum fyrirtækisins Nordverse sem sérhæfir sig m.a. í stafrænum lausnum innan heilbrigðisgeirans með sérstaka áherslu á máltækni. Nýlega tók hann þátt í samstarfi með stjórnvöldum að útgáfu Elemennt, námskeiðs í gervigreind sem er opið öllum.

Vísindakaffi er ný viðburðaröð sem miðast að því að ræða um vísindi á mannamáli. Fenginn er sérfræðingur á vissu sviði og hann spurður spjörunum úr, eftir stutta kynningu. Áhorfendur fá líka tækifæri til að taka þátt í umræðunum. Engin þekking á efninu nauðsynleg, aðeins áhugi. 

 

Nánari upplýsingar:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is