
Um þennan viðburð
Vekjum vorið | Fræsáning með Seljagarði
Hefur þú áhuga á að læra hvernig forsáning fyrir grænmetisrækt fer fram?
Sjálfboðaliðar frá Seljagarði verða á svæðinu og aðstoða áhugasama.
Vinsamlegast mætið með sáðmold, bakka og fræ.
Í Borgarbókasafninu Gerðubergi er Fræsafn og því gott að skoða hvað er í boði áður en hafist er handa við að sá fræjum. Fræsafn er að finna á sjö söfnum Borgarbókasafnsins.
Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar.
Viltu vita meira um Fríbúðina?
Viðburður á Facebook
Vekjum Vorið | Vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi
Nánari upplýsingar veita:
Mary Overmeer, Seljagarður
seljagardur109@gmail.com
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411 -6170