Fræðsla
Kaffistundir
Spjall og umræður
Tæknikaffi | Fáðu aðstoð í opnum tíma
Fimmtudagur 30. júlí 2020
Tæknikaffi verður á Borgarbókasafninu í Grófinni alla fimmtudaga frá kl. 16:00-18:00.
Í Tæknikaffinu veitir starfsfólk safnsins margvíslega tækniaðstoð, m.a. við að tengjast netinu, finna vefsíður og eyðublöð, nota netið, tölvur, spjaldtölvur og síma. Best er að fólk hafi eigin tölvur eða snjallsíma meðferðis en það verða þó einhverjar tölvur til afnota svo og heyrnartól.
Stundirnar eru öllum opnar.
Viðburður á Facebook / Info in English on Facebook.
Starfsmaðurinn sem verður til aðstoðar er ekki sérfræðingur um tölvu- eða tæknimál þannig að ef vandamálið er meiri háttar verður að leita til sérfræðinga.
Við hvetjum notendur til að senda okkur ábendingar um hvað sniðugt væri að fjalla um í tæknikaffinu næsta vetur.