Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Fræðsla
Skapandi tækni

Smásmiðja | Hönnun í teikniforriti fyrir þrívíddarprentara

Mánudagur 4. desember 2023

Opnir aðstoðartímar verða haldnir í tónlistar- og myndvinnsluverinu í Grófinni annan hvern mánudag milli klukkan 15:00-16:00.

Í tímunum sem kallast Smásmiðjur verður farið yfir ákveðin tækniatriði hverju sinni, sem tengist mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnslu. 

Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til klukkan 18:00.

 

Dagskrá haustmisseris er sem segir: 

9. október |   Að klippa saman vídeó – Grunnatriði í Final Cut Pro 

23. október |   Hrollvekjandi hljóðhönnun í tilefni hrekkjavökunnar

6. nóvember |   Að búa til takt í Logic Pro tónlistarforritinu

20. nóvember |    Að nota grænskjá í Final Cut Pro

4. desember |   Hönnun í þrívíddarteikniforriti fyrir þrívíddarprentarann 
(Vikuna eftir verður tekið á móti þeim sem vilja prenta út afraksturinn)


Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka
Sími: 411 6122 / 665 0898
karl.james.pestka@reykjavik.is

 

Merki