
Maður getur alltaf á sig blómum bætt
Um þennan viðburð
Tími
13:00 - 14:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Fræðsla
Kaffistundir
Spjall og umræður
Plöntuskipti | Blóm og græðlingar
Sunnudagur 21. maí 2023
Allir blómaunnendur velkomnir á bókasafnið með plöntur, græðlinga (afleggjara) og fræ til að skiptast á við aðra ræktendur.
Inni á safninu verður pláss fyrir inniblómin en úti á svölunum er hægt að vera með garðplöntur.
Öll sem áhuga hafa á plöntum fyrir heimilið eða í garðinn, eru hvött til að koma og gera góð skipti. Þau sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomin, það er aldrei að vita nema hægt sé að fá blóm eða afleggjara gefins.
Einnig er þetta upplagt tækifæri fyrir þau sem eiga umfram, að deila með öðrum.
Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250 / 892 0326