
Um þennan viðburð
Opnun | Fræsafn í Kringlu með Vilmundi Hansen
Sjöunda Fræsafn Borgarbókasafnsins opnar nú á Borgarbókasafninu Kringlunni. Fræsafnið er lítið svæði inni á bókasafninu þar sem er hægt að ná sér í ókeypis fræ til ræktunar, en einnig er tekið á móti afgangsfræum í afgreiðslu safnsins.
Í tilefni nýja Fræsafnsins mun Vilmundur Hansen, garðyrkju- og grasafræðingur, fara yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við sáningu sumarblóma, kryddjurta og fjölærra plantna, svo sem sáningartíma, herslu og gróðursetningu. Að fræðslu lokinni verður Fræsafnið formlega opnað.
Vilmundur hefur skrifað um garðrækt í Bændablaðið, haldið úti hlaðvarpsþættinum „Ræktaðu garðinn“ þinn og stjórnað vinsælum Facebook-hóp undir sama nafni með ráðgjöf og skoðanaskiptum um garðyrkju og gróður.
Það er ekki seinna vænna en að huga að sumrinu, gríptu þér fræ til sáningar og/eða komdu með afgangs fræ að heiman fyrir önnur til að njóta.
Öll fræ velkomin, inni- og útiplöntur og matjurtir.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur
holmfridur.maria.bjarnardottir@reykjavik.is | 411 6202
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204