
Um þennan viðburð
Tími
15:00 - 17:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Enska
Fræðsla
Ókeypis Zouk danskennsla og kaffispjall
Sunnudagur 26. janúar 2025
Ertu að leita að einhverju nýju og skemmtilegu að gera um helgina? Hvernig væri að koma á bókasafnið, læra nokkur Zouk dansspor, hitta fólk og spjalla yfir kaffibolla?
Zouk-danskennslan er ókeypis og hentar byrjendum í dansi en líka þeim sem vilja fá upprifjun.
Skráning er nauðsynleg, en hún fer fram hér.
Við hverju má búast:
✨ 15:00-16:00: Byrjendavænt dansnámskeið þar sem kennd eru grunnatriði í Zouk dansi, að tengjast dansfélaga, samhæfa hreyfingar og hvernig danssamskiptum er háttað. Notast er við skemmtilega leiki og ýmislegt til að brjóta ísinn
☕ 16:00-17:00: Notaleg stund til að blanda geði og spjalla yfir kaffibolla við nýfengna félaga
Athugið að kennslan fer fram á ensku.
Nánari upplýsingar veita:
Celina og Karol, danskennarar
dance@ckzouk.com