Myndasögunámskeið: Kyntjáning og myndasögur
Skráning er á þennan viðburð og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Sjá nánar HÉR…
Þetta námskeið hentar bæði fullorðnum og ungmennum. Sjá skráningarform neðst á síðunni.
Til að fagna útgáfu myndasögunnar Brazen eða Eldhugar eins og hún heitir á íslensku (AM Forlag gefur út), mun Íslenska myndasögufélagið halda myndasögunámskeið byggt á verkinu! Höfundur Eldhuga er Pénélope Bagieu en sagan kom fyrst út á frönsku árið 2016 undir titlinum Les Culottés: Des Femmes Qui ne Font Que ce Qu’elles Veulent.
Á námskeiðinu verður farið yfir styrkleika myndasögunnar sem miðils þegar kemur að sjálfstjáningu, sérstaklega þegar kemur að tjáningu á kyngervi, kynhneigð og öðrum málefnum sem svo oft standa okkur nærri.
Við komum saman á 5. hæð Borgarbókasafnsins í Grófinni og byrjum á að horfa á 5 stuttar myndir úr teiknimyndaseríunni um Eldhugana áður en námskeiðið hefst. Teiknimyndirnar eru á frönsku með íslenskum texta en námskeiðið verður haldið á ensku og íslensku.
Þessi viðburður er hluta af dagskrá sem unnin var með Franska sendiráðinu og Alliance Française í Reykjavík með stuðningi frá UNESCO Bókmenntaborginni Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, Sérfræðingur - Fjölmenningarmál
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is