Um þennan viðburð

Tími
19:30 - 21:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Fræðsla

make-a-thek | Fötin sem við gerum við, eru fötin sem skipta máli

Miðvikudagur 11. mars 2026

Ragna S. Bjarnadóttir, lektor og fagstjóri við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands flytur erindi og leiðir spjall um fataviðgerðir fyrr og nú.  

Áður fyrr voru viðgerðir nauðsynlegar þar sem textíll var dýr og af skornum skammti. Í dag er raunin önnur, eða hvað?  

Fjallað verður um skapandi viðgerðir, ósýnilegar viðgerðir og um tilfinningarnar og virðið sem liggur í sumum fötunum okkar.  

 

Erindið fer fram á íslensku. 

 

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.  

  Viðburður á facebook

Nánari upplýsingar veitir:  
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi  
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170