Um þennan viðburð
Lífsstílskaffi I Gönguskíði fyrir alla
Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Skráningarform er neðst á síðunni.
Viðburðinum verður einnig streymt á : www.facebook.com/Borgarbokasafnid/live
Sjá nánar um sóttvarnarreglur
• Staðsetning viðburðar: Berg á efri hæð
• Hámarksfjöldi gesta: Farið verður eftir ráðleggingum um hámarksfjölda
• Kaffihúsið er opið
Gönguskíði er frábær hreyfing og útivera sem er hefur undanfarin ár notið sífellt meiri vinsælda á Íslandi.
Emelía Blöndal mun stikla á stóru um allt sem varðar gönguskíði. Allt frá því að vera notaleg róleg útivera yfir í að stunda gönguskíði sem keppnisíþrótt.
Til eru mismunandi tegundir af gönguskíðum og búnaði sem hægt er að nota við mismunandi aðstæður.
Emelía Blöndal starfar sem fjallaleiðsögumaður og hefur verið á gönguskíðum undanfarin 20 ár.
Síðustu ár hefur hún staðið fyrir gönguskíðanámskeiðum fyrir almenning og sjálf hefur hún tekið þátt í nokkrum af helstu skíðagöngumótum erlendis.
Lífsstílskaffi er hluti af viðburðaröðinni Kaffistundir en í vetur er jafnframt boðið upp á fjölbreytta dagskrá í menningarhúsum Borgarbókasafnsins.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s: 4116122