Larry Jaffee will give a talk in Grófin Library.
Larry Jaffee will give a talk in Grófin Library.

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Enska
Fræðsla
Spjall og umræður
Tónlist

Fyrirlestur | Upprisa vínylsins og sykurrófuplötur

Miðvikudagur 21. janúar 2026

Larry Jaffee segir frá endurkomu vínylplötunnar og nýju fyrirtæki sem framleiðir plötur úr sykurrófum!

Ein ólíklegasta endurkoma aldarinnar hefur verið upprisa vínylplötunnar. Flestir höfðu verið búnir að afskrifa þetta form seint á síðustu öld en fregnir af dauða plötunnar voru stórlega ýktar. Síðustu tvo áratugi hafa þær orðið vinsælli með hverju árinu. 

Senn mun rísa fyrsta plötuframleiðslan á Íslandi síðan á níunda áratug tuttugustu aldar, Thermal Beets. En þar verða plöturnar ekki búnar til úr vínylplasti, heldur sykurrófum! 

Til að ræða upprisu vínylplötunnar og þetta spennandi nýsköpunarverkefni kemur Larry Jaffee, einn af stofnendum Thermal Beets og Making Vinyl, til okkar og segir frá. Hann er einnig höfundur bókarinnar Record Store Day: The Most Improbable Comeback of the 21st Century (Rare Bird Books, Los Angeles) frá árinu 2023. 

Þessi áhugaverði fyrirlestur fer fram á ensku. 

Vefsíða Larry Jaffee: https://larryjaffee.com

Viðburðurinn á Facebook
 

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100