Hrefna Sverrisdóttir
Hrefna Sverrisdóttir höfundur Viltu finna milljón?

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla

Fróðleikskaffi | Viltu finna milljón?

Miðvikudagur 15. febrúar 2023

Velkomin á síðdegisfræðsluviðburð í Gerðubergi þar sem Hrefna Sverrisdóttir, höfundur bókarinnar Viltu finna milljón? gefur góð ráð tengd fjármálum og sparnaði.
Viðburðurinn fer fram á kaffihúsinu í Gerðubergi. 

Flest eigum við meiri peninga en við höldum en skortir aðeins tækin og tólin til að finna þá. Af hverju að gefa fyrirtækjum út í bæ tugi ef ekki hundruð þúsunda af tekjunum okkar á hverju ári ef að við getum auðveldlega komist hjá því? Er ekki betra að njóta peninganna sjálf og nota þá í eitthvað sem veitir okkur ánægju?

 

Um bókina
Viltu finna milljón? færir þér fjölmargar aðferðir sem settar eru fram á léttan og einfaldan hátt til að minnka kostnað og auka tekjur. Allt frá beinum aðgerðum í fjármálum yfir í að greina samskipti þín þegar kemur að peningum og peningapersónuleika þinn. Í bókinni er að finna ráð til auka tekjur auk upplýsinga um allt það helsta sem við kemur fjármálum t.d. fjármálauppeldi, lánum, peningahegðun og fjárfestingum auk viðtala við fjölda einstaklinga sem gefa góð ráð á sínum sviðum. Bókin inniheldur jafnframt hundruði sparnaðarráða um allt sem við kemur okkar daglega lífi eins og rekstur heimilis, veislur, matarinnkaup, framkvæmdir, fatakaup, ferðalög, heilsu, samgöngur, tryggingar, kaup- og sölu fasteigna svo eitthvað sé nefnt.

Viðburður á Facebook. 


Upplýsingar um viðburðinn veitir:

Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi, ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is 

Merki