
Um þennan viðburð
Fríbúð | Umbreytum gömlum spilum
Áttu gömul eða óspilanleg borðspil sem liggja óhreyfð? Í þessari ókeypis smiðju færðu tækifæri til að endurhugsa, umbreyta og endurnýta borðspil.
Leiðbeinendur smiðjunnar eru Embla Vigfúsdóttir og Steingerður Lóa Gunnarsdóttir
Embla er vöru- og leikjahönnuður sem hefur haldið ýmsa borðspila- og leikjaviðburði fyrir börn og fullorðna.
Steingerður er menntaður leikjahönnuður og með einstaka þekkingu á borðspilum vegna vinnu sinnar til margra ára í Spilavinum.
Við hvetjum þátttakendur til að koma með óspilanleg spil en annars verður fullt af efnivið og borðspilum í boði á staðnum til að breyta í „ný“ og spennandi spil.
Það er takmarkað pláss í boði, svo skráning er nauðsynleg hér fyrir neðan.
Viltu vita meira um Fríbúðina?
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170