Um þennan viðburð
Tími
17:30 - 19:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska
Fræðsla
Kaffistundir
Skapandi tækni
Fríbúð | Fatasóun og endurnýting textíls
Miðvikudagur 2. október 2024
Hvernig lengjum við líftíma textíls? Hvaða leiðir er hægt að fara til að endurnýta textíl, og lengja líftíma textíls í hringrásarkerfinu ?
Katrín María Káradóttir veltir upp þessum spurningum í erindi sínu og spjalli og kynnir þau verkefni sem hún hefur leitt á þessu sviði.
Katrín María, fatahönnuður og prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands, hefur um árabil rannsakað fatasóun ásamt nemendum sínum í fatahönnun. Hún hefur frá 2014 leitt verkefnið Misbrigði sem er samstarfsverkefni nema á fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands og Fatasöfnunar Rauða Krossins.
Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170