Sæunn Kjartansdóttir, Gáfaða dýrið
Sæunn Kjartansdóttir, Gáfaða dýrið

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
íslenska
Fræðsla

Fræðakaffi | Gáfaða dýrið

Mánudagur 27. janúar 2025

Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir frá efni bókar sinnar Gáfaða dýrið - Í leit að sjálfsþekkingu.

Þar beinir hún athyglinni að dýrinu í okkur, sem er hvorki skynsamt né gáfað. Sé dýrinu afneitað erum við berskjaldaðri fyrir tilhæfulausum ótta sem hefur lag á að trufla samskipti og sjálfsmynd og valda margs háttar vanlíðan. Fjallað verður um ávinning þess að gangast við dýrinu, skilja það og temja.

Sæunn Kjartansdóttir er sjálfstætt starfandi sálgreinir með langa reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks. Hún er einn stofnenda Miðstöðvar foreldra og barna, sem nú tilheyrir Geðheilsumiðstöð barna, sem sérhæfði sig í tengslaeflandi meðferð foreldra og ungbarna. 

Bækur Sæunnar eru:

  • Hvað gengur fólki til? Leit sálgreiningar að skilningi (1999)
  • Árin sem enginn man, áhrif frumbernskunnar á fullorðna (2009)
  • Fyrstu 1000 dagarnir, barn verður til (2015)
  • Óstýriláta mamma mín … og ég (2019)
  • Nýjasta bók hennar er Gáfaða dýrið (2024)


Viðburður á Facebook
 

Nánari upplýsingar veita:

Sæunn Kjartansdóttir
saeunn@simnet.is |  581 1148

Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230

Bækur og annað efni