Um þennan viðburð
Fræðakaffi | Gáfaða dýrið
Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir frá efni bókar sinnar "Gáfaða dýrið". Þar beinir hún athyglinni að dýrinu í okkur, sem er hvorki skynsamt né gáfað. Sé dýrinu afneitað erum við berskjaldaðri fyrir tilhæfulausum ótta sem hefur lag á að trufla samskipti og sjálfsmynd og valda margs háttar vanlíðan. Fjallað verður um ávinning þess að gangast við dýrinu, skilja það og temja.
Sæunn Kjartansdóttir er sjálfstætt starfandi sálgreinir með langa reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks. Hún er einn stofnenda Miðstöðvar foreldra og barna, sem nú tilheyrir Geðheilsumiðstöð barna, sem sérhæfði sig í tengslaeflandi meðferð foreldra og ungbarna.
Bækur Sæunnar eru: Hvað gengur fólki til? Leit sálgreiningar að skilningi (1999), Árin sem enginn man, áhrif frumbernskunnar á fullorðna (2009) Fyrstu 1000 dagarnir, barn verður til (2015) og Óstýriláta mamma mín … og ég (2019). Nýjasta bók hennar er Gáfaða dýrið (2024).
Frekari upplýsingar veita:
Sæunn Kjartansdóttir, s. 581 1148
saeunn@simnet.is
Sigríður Stephensen, s. 411 6230
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is