Um þennan viðburð
OKið á Hönnunarmars | Morgunverðarkynning
Morgunverðarkynning á aðferðafræði hönnunarhugsunar (Design Thinking)
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönnunarleiðtogi kynnir ferlið og útkomuna á bak við Okið.
OKið er nýtt ungmennarými í Gerðubergi og er tilraunaverkefni Borgarbókasafnins árið 2020. OKið er styrkt af Barnamenningarsjóði og mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Okið er þróað með virkri þátttöku ungmenna í Breiðholti þar sem þau fá tækifæri til að sjá sínar eigin hugmyndir verða að veruleika og verður rýmið í stöðugri þróun og í raun ein stór frumgerð að mögulegu framtíðarbókasafni fyrir ungt fólk. Hönnuðir sköpuðu rýmið eftir viðtöl við krakkana í hverfinu og útfærðu það með þarfir og óskir krakkana að leiðarljósi.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir setti saman og leiddi teymið sem hannaði OKið. Guðrún lauk BA í iðnhönnun frá Design Academy Eindhoven og MPM í verkefnastjórnun frá HR, hún rak hönnunarfyrirtækið Studiobility frá 2005 – 2017 en leiðir nú umbreytingarverkefni Borgarbókasafnsins með aðferðafræði hönnunarhugsunar (Design Thinking).
Hönnuðir Oksins eru: Embla Vigfúsdóttir, listrænn leikjahönnuður, Shu Yi sem sérhæfir sig í grafískri upplýsingahönnun og gagnvirkri hönnun, Fabio Alesssndrelli forritari, Tinna Ottessen leikmyndahönnuður og Lofkastalinn smíðaði leikmyndina.
Frítt er á morgunverðarfundinn en skráning fer fram hér að neðan.
Hægt er að lesa nánar um OKið hér.
Frekari upplýsingar veitir:
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | S: 698 2466