
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Skemmtileg bókamerki
Nú fer að styttast í vorið og þá er tilvalið að koma saman og föndra skemmtileg, litrík bókamerki, fyrir allar þær bækur sem á að lesa í vor og sumar.
Allur búnaður verður á staðnum svo það er bara mæta og hafa það huggulegt.
Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal frá kl. 15:30-17:30.
Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn.
Tilbúningur hentar skapandi fólki á öllum aldri. Börn yngri en 8 ára komi í fylgd með forráðamanni.
Kostar ekkert og engin skráning.
Nánari upplýsingar veitir,
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is