Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska
Föndur

Tilbúningur | Sashiko - AFLÝST

Fimmtudagur 10. október 2024

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?

Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.

Í þessum tilbúningi ætlum við að sauma út. Sashiko er gömul japönsk aðferð þar sem einföld útsaumsspor eru notuð til að styrkja og skreyta tau. Sporin eru einföld og tilgangurinn hversdagslegur en útkoman getur verið bæði flókin og falleg.

Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. 

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg. 


Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250