Several christmas ornaments.

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Tilbúningur | Jólakúlur

Miðvikudagur 6. desember 2023

Komdu í Spöngina og búðu til jólakúlur með okkur!
Við skreytum vattkúlur með fjölbreyttum áhöldum og efnivið, og búum til skemmtilegar og persónulegar jólakúlur.

Áhöld og efniviður verða á staðnum.

Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni fyrsta miðvikudag hvers mánaðar, og í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar.
Viðburðurinn er opinn fólki á öllum aldri, og við hvetjum fullorðna sérstaklega til að mæta og taka þátt. Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.

Viðburðurinn á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6237