
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Gjafapokar
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.
Nú er gjafatími fram undan og við ætlum að taka notaða einlita (eða því sem næst) haldapoka úr pappír og gefa þeim andlitslyftingu. Við klippum eitthvað fallegt úr bóka- og tímaritasíðum, límum á poka og teiknum kannski aðeins í kring. Þannig fá notaðir innkaupapokar framhaldslíf sem fínir gjafapokar.
Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.
Tilbúningur í Árbæ hentar fólki á öllum aldri. Við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi óháð eigin hugmyndum um listræna hæfileika. Börn yngri en 12 ára ættu að vera í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað þau.
Tilbúningur fer fram á Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar og á Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250