Tilbúningur | Fléttaðar stjörnur
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.
Í þessum síðasta Tilbúningi fyrir jól ætlum við að flétta stjörnur úr gömlum bókasíðum. Stjörnurnar má svo þræða upp á band og nota til að skreyta jólatré, pakka eða bara eitt og annað. Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.
Tilbúningur er opinn öllum en hentar best börnum eldri en 9 ára og fullorðnum á öllum aldri.
Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng annan miðvikudag hvers mánaðar klukkan 17:00.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
HÉR má kynna sér dagskrá Tilbúnings í haust...
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250