Box sem líta út eins og bækur
Box í bókarlíki sem má nota undir ýmislegt smálegt

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska, English
Föndur

Tilbúningur | Bókabox

Fimmtudagur 12. september 2024

Búum til box sem líta út eins og bækur!

Komdu á Tilbúning í Árbæ og lærðu að búa til bókabox — litla hirslu sem lítur út eins og bók! Þessir kassar eru fullkomnir til að varðveita eitthvað háleynilegt eða sem gullfalleg gjafaaskja.

Viðburðurinn er fyrir fólk á öllum aldri en börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað þau. Við hvetjum sérstaklega fullorðið fólk til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi, óháð „listrænum hæfileikum“.

Áhöld og efniviður verða á staðnum, en þér er velkomið að taka pennaveskið með! Aðgangur er ókeypis og skráning óþörf. 

Tilbúningur fer fram að jafnaði á Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og Borgarbókasafninu í Spönginni á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar.

 

Viðburðurinn á facebook 

 

Nánari upplýsingar veitir:
Védís Huldudóttir | Sérfræðingur
vedis.huldudottir@reykjavik.is | ✆ 411-6237