
Um þennan viðburð
Tilbúningur | Blómstrandi greinar
Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunargleðin fær að njóta sín í góðum félagsskap?
Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.
Í þessum tilbúningi ætlum við að búa til lítil pappírsblóm og festa á trjágreinar. Síðan látum við blómstarndi greinarnar í vasa, gefum þeim vatn og yl innandyra, og eftir rúmlega viku byrja þær að laufgast.
Sæunn Þorsteinsdóttir listakona leiðbeinir.
Tilbúningur í Árbæ hentar fólki á öllum aldri. Við hvetjum fullorðið fólk sérstaklega til að leyfa sér að taka þátt og vera skapandi óháð eigin hugmyndum um listræna hæfileika. Börn yngri en 12 ára ættu að vera í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað þau.
Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram á söfnum okkar í Árbæ, Spöng og Úlfarsárdal.
Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250