
Um þennan viðburð
Vetrarfrí | Smiðja með Rán Flygenring
Rán Flygenring býður upp á skapandi fjölskyldusmiðju í tengslum við útgáfu barnabókarinnar Tjörnin.
Tjörnin er hyldjúp og töfrandi saga um forvitni og framhleypni, stjórn og stjórnleysi, en ekki síst um samband okkar við eigin tegund og allar hinar sem við deilum nærumhverfinu með.
Í smiðjunni fá þátttakendur að kynnast þeim töfraheimi sem lífríki tjarnarinnar er og tækifæri til að skapa sínar eigin lífverur og vistkerfi.
Ekki þarf að skrá sig í smiðjuna.
Rán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bók sína Tjörnin. Hún hefur margsinnis hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og árið 2023 hlaut hún Norðurlandaráðsverðlaunin fyrir bókina Eldgos.
Kíktu á heildaryfirlit viðburða Borgarbókasafnsins eða á vef Reykjavíkurborgar þar sem einnig er aðgengilegt yfirlit yfir fjölbreytta dagskrá í vetrarfríinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | s: 411 6230