Prinsessusögustund

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
enska, spænska og úkraínska
Börn
Föndur

Vetrarfrí | Prinsessusögur og föndur

Laugardagur 22. febrúar 2025

Snjódrottningin, Snjóprinsessan og Kraftastelpan bjóða upp á töfrandi sögustund á ensku, spænsku og úkraínsku. Að lokinni sögustund gefst tækifæri til þess að leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín í skemmtilegri smiðju þar sem börnin búa til prinsessukórónu sem þau fá að taka með sér heim!

Á milli sögustunda verður söngur og dans og því er gott að vera tilbúinn að hreyfa sig og dansa með uppáhaldspersónunum.

Þátttaka ókeypis, öll velkomin.

Ekki missa af þessari töfraupplifun!
 

Kíktu á  heildaryfirlit viðburða Borgarbókasafnsins  eða  á vef Reykjavíkurborgar þar sem einnig er aðgengilegt yfirlit yfir fjölbreytta dagskrá í vetrarfríinu.
 

Viðburður á Facebook
 

Nánari upplýsingar veitir: 
Jessica Chambers, contact@prinsessur.is
prinsessur.is