Halldór Baldursson.
Halldór Baldursson.

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:00
Verð
Frítt
Börn

Útskriftarhátíð Listkennsludeildar LHÍ | Teiknisprell

Laugardagur 14. maí 2022

 

Meistaraneminn og teiknarinn Halldór Baldursson leiðir teiknismiðjuna Teiknisprell.

Nánari upplýsingar um lokaverkefni Halldórs, „Hvað nú? Myndasaga um menntun“ má finna hér.

 

Á klukkutíma lærir þú smá brot af því sem þú hélst þú myndir aldrei um teikningu.

Hænuskref verður tekið frá Óla prik í áttina áttina að Michelangelo með viðkomu hjá Andrési Önd og passað upp á að enginn týnist á leiðinni.

Allir velkomnir.

Halldór Baldursson

 

Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og þar kynna verðandi kennarar lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti.

Listkennsludeild Listaháskóla Íslands stendur fyrir útskriftarviðburði dagana 13. og 14. maí.

Dagskrá er opin öllum og fer fram í Borgarbókasafni / Menningarhúsi Gerðubergi.

Börn ásamt aðstandendum eru sérstaklega boðin velkomin á fjölskylduvænar listasmiðjur nemenda.

Dagskrá og nánari upplýsingar um lokaverkefni nemenda má finna hér.