![Svarthvít mynd, fimm börn að spila á hvert sitt hljóðfæri, stelpur að spila á fiðlu, þverflaut og flygil, strákar að spila á selló og gítar](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/jolatonleikar_tonlistarskolans_i_grafarvogi_minni.png?itok=IppuyOVr)
Um þennan viðburð
Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Börn
Tónlist
Ungmenni
Tónleikar | Jólaandinn vakinn!
Þriðjudagur 12. desember 2023
Nemendur Tónlistarskólans í Grafarholti og Úlfarsárdal leika inn jólin í Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal. Jólaandinn verður vakinn í hverfinu með töfrandi tónum í skapandi umhverfi menningar og sagna. Hingað til hafa tónleikar farið fram með formlegum hætti ýmist í tónlistarskólanum eða kirkjum. Nú ætlar tónlistarskólinn að deila með okkur gleðinni og færa tónlistina nær fólkinu.
Öll velkomin að njóta og þá er kjörið að velja sér lesefni í leiðinni eða skella sér í jólasund á eftir.
Tímasetningar:
- Þriðjudaginn 12. desember kl. 17:00
- Föstudaginn 15. desember kl. 16:00
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Geir Unnarsson | Deildarstjóri
unnar.geir.unnarsson@reykjavik.is